við
Frá árinu 1992 hefur fyrirtækið starfað að framleiðslu kvikmynda og auglýsinga ásamt því að aðstoða erlend fyrirtæki sem kjósa Ísland og Grænland sem tökustað fyrir kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar.
Yfirgripsmikil þekking á þörfum viðskiptavina, hugmyndauðgi, útsjónarsemi, skipulögð vinnubrögð og þægilegt viðmót eru okkar helstu einkenni.
Við trúum á og erum virkir þátttakendur í íslenskri kvikmyndagerð. Öturlega er unnið að þróun handrita og framleiðslu íslenskra kvikmynda sem erindi eiga á aðra markaði.
Fyrirtækið leggur áherslu á áframhaldandi traust og ánægjuleg samskipti við stóran hóp innlends fagfólks sem starfar við gerð auglýsinga, kvikmynda og viðburða.
Við höfum gaman af því sem við gerum.
