Viðburðastjórn
Viðburðir þjóna sífellt stærra hlutverki í markaðs- og kynningarstarfi fyrirtækja. Til að hámarka árangur slíkra verkefna er nauðsynlegt að huga vel að tilgangi, markmiðum og þeim skilaboðum sem senda á.
Með því að sækja viðburðastjórn til fagaðila er hægt að hámarka áhrif, árangur og jafnframt afrakstur fjárfestingar fyrirtækja í stórum sem smáum viðburðum.
Pegasus hefur sérþekkingu á þessu sviði og áralanga reynslu af skipulagi, undirbúningi og framkvæmd margskonar viðburða. Í ljósi vaxandi eftirspurnar erlendra aðila eftir viðburðastjórn er sú þjónusta nú boðin með markvissum hætti.
Íslensk fyrirtæki geta nýtt sér víðtæka og vaxandi reynslu Pegasus við framleiðslu og stjórn viðburða hvort sem er að hluta eða öllu leiti. Við aðstoðum við val á þema, listræna útfærslu, umgjörð, val á staðsetningu, útvegun veitinga, gjafa, auglýsingavara, skemmtiatriða, tækjabúnaðar, dagskrárgerð og heimildamyndagerð.
Þegar mikið stendur til:



