Árni Ólafur Ásgeirsson fæddist í Reykjavík 1972 og ólst upp í einu af úthverfum Reykjavíkur. Hann fékk áhuga á kvikmyndagerð sem unglingur, er hann kynntist kvikmyndum frönsku- og tékknesku nýbylgjunnar og ítölsku ný raunhyggjunnar. Hann byrjaði að vinna sem aðstoðarmaður í litlum verkefnum og var að fikta heima við að gera stuttmyndir.
1995 hóf hann nám á leikstjórabraut við pólska kvikmynda þjóðskólann í Lodz. Þar útskrifaðist Árni 2001 og var útskriftarverkefni hans stuttmyndin ´P.S.´, sem var frumsýnd í Cinefondation hluta Cannes kvikmyndahátíðarinnar 2002. í sumarfríum frá kvikmyndagerðarnáminu, vann Árni í hinum og þessum kvikmyndaverkefnum á Íslandi, þar sem hann vann sig upp í að vera fyrsti aðstoðarleikstjóri í stuttmyndum, auglýsingum og þremur kvikmyndum, áður en hann leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd ´Blóðbönd´.
Eftir að Árni útskrifaðist skrifaði hann og leikstýrði dönsku stuttmyndinni ´Anna's dag´, og fékk fyrir verðlaunin Priz de Presse, á stuttkvikmyndahátíðinni í Clermont Ferrand. Hann er einnig annar af höfundum íslensku kvikmyndarinnar ´Maður eins og ég´, sem vinur hans, Robert Douglas leikstýrði. Árni býr nú og vinnur í Reykjavík, sem handritshöfundur, leikstjóri auglýsinga og kennari í leiklistardeild íslenska Listaháskólans.




