Rúnar Ingi Einarsson



 

Rúnar Ingi hefur starfað við kvikmyndagerð frá unglingsárum. Hefur hann prófað nánast öll störf í kvikmyndaframleiðslu en allan tíman stefnt í leikstjórastólinn

Hann hefur leikstýrt tónlistarmyndböndum fyrir íslenska og erlenda tónlistarmenn við góðan orðstír.

Leikstýrði hann m.a. einu stærsta tónlistarmyndbandi sem hefur verið framleitt hér á landi, "Frostrósir" sem er spilað árlega á öllum Norðurlöndunum í kringum jólin.

Rúnar Ingi hefur leikstýrt fjölda stuttmynda sem unnið hafa til verðlauna.

Fékk hann m.a. Edduverðlaun fyrir bestu stuttmynd frá ungum kvikmyndagerðarmanni árið 2006.

Nýlega lauk hann við stuttheimildamyndina Ísland Úganda og er þegar byrjaður að undirbúa þá næstu.