Eftir að Gaui útskrifaðist af Félagsfræðibraut úr MS, lagði pilturinn land undir fót og hélt til Los Angeles þar sem hann hóf nám í Innanhússarkitektúr. Þar hlaut hann fjölda verðlauna og útskrifaðist með glans.
Að námi loknu hannaði Gaui húsgögn úr gegnsæju plasti og púffaða veggi fyrir fínar frúr í Beverly Hills. Fljótlega gat hann bara ekki meir! Þaðan lá leiðin í Leikmyndahönnun hjá Alex McDowell. Þar fann kauði sig annsi vel og vann fyrir marga stærstu leikstjóra Hollywood, þar á meðal David Fincher og Steven Spielberg.
Áður en langt um leið,var hann orðinn sinn eiginn herra, sem leikmyndahönnuður. Hannaði Gaui hundruði auglýsinga, og vann við yfir 18 kvikmyndir,meðal annara, Spawn, Blade og Very Bad Things. Þegar hér er komið sögu hafði hann smitast af ólæknandi leikstjórabakteríu sem hann gaf sig á vald.
Afleiðingarnar eru þó nokkrar auglýsingamyndir, sem margar má berja augum hér á síðunni. Gaui er nú búsettur á íslandi leikstýrir fyrir Pegasus og starfar einnig með P.I.G. USA, í Ameríku og Asiu.







