Reynir Lyngdal



Strax sem unglingur lofaði Reynir góðu og vann fjölda verðlauna fyrir listræn myndbönd, og stuttmyndir. Eftir nám í kvikmyndagerð við hinn virta skóla CECC í barcelona, sneri Reynir heim til Íslands.

Hann gleymdi ekki listrænum rótum sínum og leikstýrði fjölda af dansstuttmyndum, og vann til verðlauna á Stuttmyndadögum í Reykjavik sem og á Toronto kvikmyndahátíðinni.

Reynir er mjög ´hands on´leikstjóri, og sökkvir sér í sköpunarferlið, frá byrjun hugmyndar til enda klippingar. Hann hefur fengið fjölda verðlauna bæði hér heima og erlendis. Árið 2003 var auglýsing sem hann gerði fyrir Thule, með auglýsingastofunni Gott Fólk, í lokaúrtaki fyrir Cannes auglýsingahátíðina.

Reynir var valinn til að gera stuttmyndina Kossinn, af European Film Academy og Wim Wenders, sem sýnd var á the European Film Academy Awards, 2003.

Reynir er giftur Elmu Lísu Gunnarsdóttur, og í frístundum er hann plötusnúður og spilar mikið tónlist frá sjöunda áratugnum, til að næra ungt íslenskt klúbbalið!