Styrmir Sigurdsson



Styrmir Sigurðsson er búinn ad vera einn af okkar vinsælustu leikstjórum um árabil. Hann hefur þróað með sér mjög fjölbreytilegan stíl. Hann hefur gott auga fyrir kímni, og hefur leikstýrt mörgum af okkar fyndnustu auglýsingum og sjónvarpsþáttum.

Hann er leikstjóri leikaranna, og á gott með að fá það besta útúr jafnt áhugaleikurum sem atvinnuleikurum. Styrmir er einnig með mjög glöggt auga fyrir útliti og hefur þörf fyrir að endurnýja sig reglulega.

Styrmir hefur þroskast sem mjög sterkur kvikmyndagerðarmaður sem hefur mjög gott lag á hinum hversdagslegu augnablikum, sem og hinum ýktu óvanalegu augnablikum. Hann er mjög hæfileikaríkur klippari og vill helst klippa sínar myndir sjálfur.

 

Í tómstundum segir Styrmir skemmtilegar sem og sorglegar sögur af sjálfum sér og öðrum. Hann er einnig tónlistarmaður og er um þad bil ad fara að gefa út geisladisk, en þetta hefur hann sagt annsi lengi!

Eins og með svo marga leikstjóra sem eru einnig fjölskyldumenn, þá hefur konan hans góða stjórn á honum milli verkefna. Hann er svo bara annsi fínn náungi og mjög heimilisvænn.