Starfsfólk Pegasus býr yfir mikilli reynslu á sviði framleiðslu og samframleiðslu auglýsinga og viðburða fyrir erlend framleiðslufyrirtæki og auglýsingastofur að umboði stærstu fyrirtækja heims. Innistæðan á sameiginlegum reynslubanka samheldins hóps tryggir árangursríka vinnu sem stendur undir sívaxandi kröfum og væntingum innlends markaðar.
Leikstjórar okkar hafa unnið til fjölda verðlauna og hlotið margskonar viðurkenningar fyrir störf sín, hérlendis jafnt sem erlendis.
Tækjaleigan útvegar allt sem þarf til framleiðslu stórra sem smærri verkefna, hvort sem um er að ræða kvikmyndir, sjónvarpsefni eða auglýsingar.
Ötullega er unnið að þróun kvikmyndahandrita hjá fyrirtækinu.








